febrúar 01, 2005
Núna eru 9 dagar í hina miklu verslunarferð Möggu og Höllu!! Stefnan hefur verið tekin á Mall of America í Minneappolis. Þess má til gamans geta að inní þessu risa molli er rússíbani! Það er á 3 hæðum og við ætlum að taka eina hæð á dag.
Svo er líka Target búð rétt hjá hótelinu okkar og þar er ég búin að finna fullt flott sem mig langar í.
Halla ætlar líka að sýna mér írskan pöbb þar sem ég ætla í kokteil-smökkun:) Kannski er ég heppin og verð sú fyrsta til að sjá gelluna í glasi! Eins gott að ég kaupi myndavél úti!
Kristín Rós, eða Sean eins og hún kallar sig þessa dagana hélt þetta asskoti velheppnaða partý síðasta laugardag. Ég þekkti reyndar ekki helminginn af fólkinu, en þarna voru samt Anna Helga, Adda, Anna Kaspersen, Heiða,Hulda, Hafdís, Helga, Stebbi, Geiri, Krummi, Kristín of course og svo fólk sem ég hef aldrei séð. (já ég þekki eiginlega bara fólk sem byrjar á A eða H eða K...)
Við fórum í singstar! Ég söng reyndar ekki, en hún Anna Helga átti kvöldið:) Fór algerlega á kostum. Bætti fyrra met, þ.e þegar hún söng í kss lagið "it must have been love" með ágætum.
Ég kom með rauðvínsflösku sem við Anna stútuðum saman. Svo kom ég með kokteilávexti sem ég baðaði í vodga. Því miður hafði eg gleymt því hversu mikil áhrif það hefur á mann... lalalala
Í bænum hitti ég fullt af fólk. Alltaf hitti ég einhverja af hótelinu, Ragnheiði, Láka, Daniellu og fl. þernur. Svo hitti ég líka Rut. Verð að viðurkenna að það kom eins og þruma úr heiðskýru lofti!
Geiri gerðist halda-pilsi-niðri aðstoðarmaður og gerði það með eindæmum vel. Við fórum á 22 eftir Sólon, en stoppuðum stutt. Eftir það tók ég leigubíl heim með Kristínu og Krumma.
Á sunnudaginn fór ég til Höllu. Við horfðum á Friends 10.seríu. Halla þorði samt sem ekki að horfa á síðustu þættina. Ein ekki sátt við að þeir eru búnir:)
Núna er ég á næturvöktum í heila viku. Klára næsta mánudag! Þá fæ ég nokkra daga frí og svo er það náttúrulega bara Ameríka! :)
Until later....
posted @ 2/01/2005 08:22:00 e.h.