myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

febrúar 07, 2005



Lífið er yndislegt.... lalalala.... æi lagið þarna þú veist.....

Já svona er þetta. Næturvaktartörn er senn að ljúka, nánar tiltekið eftir 15 mínútur!!! Þá tekur við 3 daga FRÍ þar sem ég ætla að slappa af, glápa á tv og kíkja kannski á kaffihús ... já eða bara eitthvað chill. Á fimmtudaginn hefst svo hin mikla verslunar-keppni. Já maður þarf að undibúa sig andlega fyrir svoleiðis keppni. Þetta er heljarinnar púl að ráðast svona á 3 hæða moll. Það verður enginn vandi að finna eitthvað flott, heldur á ég eftir að vera í mesta basli við að hemja mig frá þvi að kaupa ekki allt frikking mollið. Svo vorkenni ég líka Höllu. Hún er ekki vön að fara með mér að versla þannig að halla mín: There are gonna be few surprises:)
Ég verð eins og svangt ljón þegar ég kemst í verslanir. Þarf að skoða ALLT, máta ALLT. Hver man ekki eftir Friends þegar Monica dró Rachel með sér á brúðarkjóla útsöluna. Rachel faldi sig undir borði vegna hræðslu við yfirgang fólksins:) hahahahaha ...;) Nei ég LOFA ég mun hemja mig!!!!

En það var brjálað og þá meina ég BRJÁLAÐ að gera á laugardagsnóttinni í vinnunni. Það lagaðist þó þegar Helga kom uppúr 6, dröslaðist til mín af djamminu og við fengum okkur smá morgunmat saman.

Það er ótrúlegt hvað við stelpur höfum leitað og leitað af íbúð, skólum og öllu sem því fylgir í DK en gjörsamlega án árangurs. Þessvegna segi ég hingað og ekki lengra!! Bráðum mun starfsfólk í Danska sendiráðinu og SíNE fara að fá alvarleg hótunarbréf frá ónefndum aðilum!!

En seriously, við verðum að fara að gera eitthvað. Allir að leggjast undir feld og íhuga aðrar ráðstafanir. Svo er pæling að fara fyrr til DK til að komast á Hróaskeldu??? Allir sammála???

En ég er að fara heim núna að lita á mér hárið og augnabrúnirnar. Kannski mar skelli sér í vax.
Ótrúlegt þegar maður hefur ekkert að gera þá fer maður ósjálfrátt að snurfusa sig. Eða er það kannski bara ég?...... æ ok ég er búin að vera að vinna í ALLA nótt og gæti verið farin að bulla....

Ps: Hafdís ef þú lest þetta: "Kenndu þeim um... kvöldunum í bænum"... "Í grænum laufskála í skóginum... búa litlir fuglar... þeir blaka vængjum dægurlangt meðan uglan ruglar..
" GOOD OLD TIMES, GOOD OLD TIMES:)

Þangað til seinna:)


posted @ 2/07/2005 07:30:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu