myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

febrúar 18, 2005



Halló Hafnarfjörður sko....
Mín ekki að standa sig í blogginu.
En nú er Ameríkuferðin okkar Höllu að baki.
Við lentum um kl19. Eftir 6 tíma flug með sætustu flugþjónum landsins:) Þar sem búðirnar voru bara opnar til 20 þá ákváðum við að slappa bara af og fara út að borða á The News room. Það er geggjaður veitingastaður sem er veggfóðraður með ELD-gömlum dagblöðum. Það voru til dæmis fréttir af Nixon hneykslinu og þegar Neil Armstrong fór á Tunglið.
Annan daginn vöknuðum við eldsnemma, þá er ég að tala um svona 6 leytið. Gátum enganvegin sofið lengur við tilhugsunina um að vera að fara að versla:) Eftið að hafa legið vakandi í rúminu spyr ég Höllu hvort hún sé vöknuð. Já mín lá alveg jafn andvaka og ég! Vorum líka mættar fyrstar í Target. Þar ætluðum við að kaupa bara svona nauðsynjar. Bara SMÁ svona sem okkur vantaði. NEEEEI, þegar við komum að kassanum þá fékk ég reinking uppá 70.000 kall og Halla svipað!!!! OG EKKI EINUSINNI KOMNAR Í MALLIÐ!! En við dóum ekki ráðalausar, hentum pokunum uppá hótel, með tilheyrandi GLÁPI frá hótelstarfsfólkinu. Ég fór í hraðbanka til að fá meiri pening og svo er bara skundað uppí Mall.
Ég missti andann um leið og ég sá búðirnar!! Þarna var Victoria's secret, Macy's, Nordstrom, Hello kitty búð, Old navy og margar fleiri. Ég náði að hemja mig, andaði djúpt inn og rólega til baka.
Við ákváðum svo að taka okkur pásu frá búðarrápi og skelltum okkur í Snoopy tivolíið. Það er staðsett í miðjunni og er svona RISA Snoopy bæli. Við fórum í tvö tæki. Í því fyrra áttum við að taka af okkur hatta og vorum ólaðar vel niður. Við bara "djísus kræst, það er ekki eins og þetta sé stórt tæki"!!! En þegar kveikt var á tækinu föttuðum við STRAX hvað gaurinn meinti... Vorum eiginlega einar í tækinu og "cool-lookið" okkar var sett á bið. Við vorum þarna æpandi, slefandi og grenjandi úr hlátri! Halla we are the best!! But anyways...
Svo hélt alvaran áfram. Við löbbuðum inní gelgjubúð. Bleikur var ríkjandi litur þarna inni og allt út í glimmeri. Afgreiðslustúlkan sem var ekki eldri en 15 ára labbar að mér og spyr hvort ég vilji óska mér undir "fairy dusti". Halla stekkur þá fram og segir hátt og snjallt "JÁ"!! Ok Halla what's up with that?? Ég segi þá bara pent já já og fæ þessa glimmergusu yfir mig. Ekki sátt.
Í þessari búð þá keyptum við okkur bleika fluffy síma. Svaka loðna. Ekki gemsa, heldur svona sæta síma í herbergið okkar:) Við verlsuðum þangað til við hnigum niður. Skriðum inná Friday's og átum yfir okkur þar. Tókum svo leigubíl uppá hótel.
Daginn eftir vaknaði ég með svo miklar harðsperrur í hendinni eftir allan þennan pokaburð að ég gat með engu móti maskarað mig!! Titraði öll og var hálf asnaleg eitthvað. Uppúr því spratt þetta mikla hláturskast okkar.
En í þetta skiptið var ferðinni heitið í "Sam's club" sem er nokkurskonar heildsölu lager. Við gerðum okkur svaka fínar. Settum upp skvísuhattana okkar og bleika glossinn. Leigubílstjórinn sem skutlaði okkur sagðist getað náð í okkur seinna því það væri erfitt að fá bíl svona langt í burtu frá bænum. Við alveg já takk. Sögðum honum að koma eftir 3 tíma. Maðurinn hélt við værum að grínast fyrst. Hver er 3 TÍMA í einni matvöruverslun!! Hann hikaði og sagði svo að hann kæmi.
Þegar inn var komið þá náði tyggjókúlusjálfsali einhvernvegin athygli okkar í hálftíma.... don't ask why!?! Svo fórum við hring í búðinni. Þarna mátti sjá allt í RISA umbúðum. Einn snakkpoki var eins og koddinn minn á stærð. Innkaupakörfurnar voru líka þannig að mætti halda að þær væru hannaðar fyrir flóðhesta!
En það þarf varla að nefna það að ég missti mig auðvitað í öllu namminu. Ég keypti td. TUNNU af einhverju tyggjói sem er ekki einu sinni gott!
Þegar ég kom að kassanum þá hafði ég ekki nóg og þurfti að fá AFTUR lán hjá Höllu. Eftir það þá kíktum við í áfengisbúðina hliðiná og keyptum nokkra lítra af allskyns bús. Tvo lítra af vodga á ca. 900 kall! Armaretto STÓRA á ca. 600 kall!! 1 1/2 líter af Martini blöndu á ca. 500 kall!! Jahá þetta var ansi skondið að borga svona lítið fyrir þetta dýrmæta sull.
Þegar við komum útúr búðinni, finally, þá bólaði ekkert á okkar elskulega bílstjóra. Við biðum og biðum. Halla var farin að skoða tennurnar á sér í spegli. Sólin var svo sterk og við vorum að kafna úr hita. Elskulega gumsið okkar var farið að bráðna. Okkur leist ekkert á blikuna. Ákváðum samt þó að halda cool-lookinu fyrir nokkrar myndatökur.
Nei nú var nóg komið. Við báðum gæja sem var að vinna þarna að hringja á taxa fyrir okkur. Loks kom bíll og náði í okkur. Hinn sem beilaði hefur greinilega ekkert litist á þessa 3 tíma sem við ætluðum að eyða í búðinni og orðið hræddur við að þurfa að hlaða bílinn af dóti. ASNI!
Við skelltum okkur uppá hótelherbergi og létum pikkalóinn koma með allt:) muhahahaha
Æ hann var svoddan krútt þessi elska. Vildi allt fyrir okkur gera. Halla hafði smá "thing" fyrir honum, ekkert alvarlegt samt:) híhíhí
En næst á dagskrá var matarboð hjá Rannveigu og Jan. Meðan Halla klæddi sig í glansgallann, lá ég á netinu að spjalla við Guðrúnu á msn. Var búin að tala við hana heillengi, og þegar ég var við það að kveðja, þá komst ég að því að þetta var barasta ekkert Guðrún heldur hún RUT dóttir hennar!! Ég vil endilega koma á framfæri að fólk á ekki að vera inná annara manna msn!! :)
Jan kom svo fljótlega og sótti okkur. Við byrjuðum á því að fara inní sólstofu og fengum fordrykk, osta og kex með. Ekkert smá flott.
Meðan hjónin elduðu þá fórum við með Sólveigu og Lauru niður í leikherbergi. Þar fórum við í foosball og pool. Ég eyðilagði foosball kjuða og Höllu kennt um ... en það er önnur ella:)
Við matarborðið fékk ég rauðvín með pastanu. Eftir nokkur glös var mín orðin svolítið líbó. Við spjölluðum lengi við hjónin. Þau sýndu okkur myndir, og þegar ég var farin að sjá eintóma tvíbura þá var ákveðið að fara með mig uppá hótel.
Þar fékk ég mér martini blönduna góðu og við gerðum tilraun til að djamma. Þá var víst ekki nóg að hafa debetkort með mynd og kennitölu. NEI! það dugði ekkert minna en passinn manns! Við héldum sko ekki! Pifff
Næsta dag fórum við í mallið. Við höfðum ekki mikinn tíma, eða bara frá 12 til 19. Sem er ekkert þarna. Við skelltum okkur í Macy's þar sem ég keypti náttkjóla, pils, skó ofl. Búðin sjálf er eins og öll kringlan!! Einnig fann ég svarta puma skó í Nordstrom. Þess má til gamans geta að þeir eru ekki TIL á Íslandi... ég voða ánægð. Hafði þurft að kaupa mér neflilega brúna á 11.000 KRÓNUR heima!! Einnig fórum við í puma búð þar sem ég keypti eitt stykki bleikt par :)
Meðan ég missti mig í pæjufötunum, skartgripunum og skónnum.... þá var vinkona mín hún Halla FÖST við Krabba- og hárbás!! Já hún var allavegana tvo tíma að máta gervihár hjá japanskri konu sem vildi óð selja henni ALLT. Halla náttúrulega sópaði að konunni seðlunum sínum og gekk í burtu með 3 hárkamba og nokkrar spennur! Næsta stopp hjá henni var hjá bás fullan af kröbbum. Þar hafði einhverjum hálfvita dottið í hug að mála greyið krabbana. Halla gekk í burtu með tvö stykki, einn batman og annan súperman.
Þetta var seinasti dagurinn okkar og við höfðum ekki einusinni náð að SJÁ allt mallið.
Um kvöldið fórum við á ítalskann matsölustað. Við pöntuðum okkur pasta. Afgreiðslustúlkan benti okkur svo á að það væri sérstakt tilboð fyrir pör á einhverjum eftirrétt... TILBOÐ FYRIR PÖR!!! Tvær saklausar ungar stúlkur að fá sér í svanginn... hvernig gat hún séð rómantískan kvöldverð út úr því?? Svo var hún alltaf hjá okkur. Þá meina ég ALLTAF yfir okkur. Brosandi og blikkandi eins og hálfviti. Anyways, maturinn kom til okkar á FATI! Risa diskar og svo risa skeiðar eða sleifar með. Við átum ca 10 % af matnum og tókum rest með okkur.
Þegar við vorum komnar aftur uppá hótel, ákváðum við að skella okkur
aðeins á hótelbarinn í pool. Við vorum varla byrjaðar að spila þegar tveir gæjar koma og fara að spjalla. Annar var rosalega hress og skemmtilegur en hinn hafði útlitið með sér. Þannig að já... þeir fengu sérstakt leyfi til að eyða okkar dýrmæta tíma þarna:) Við settumst hjá þeim og fórum að spjalla. Þeir voru á ráðstefnu sem haldin var fyrir alla collage-krakka. Auðvitað buðu þeir prinsessunum uppá kokteila:) Þeir voru í hæstu hæðum yfir því að vera að tala við íslendinga. Spurðu allskyns asnalegra spurninga um landið sem við höfðum bara gaman að, ég í náttfötum en Halla sem betur fer normal:)
Á barnum voru nokkur celebritys. Halla heldur því fram að gamla konan í þrönga rauða kjólnum með gerviaugnhárin hafi leikið kennarann í Grease. Strákarnir sögðu líka að þetta væri leikkona/leikari... en "konan" gæti alveg eins hafa verið klæðskiptingur. Einnig var lessan úr "The real world" þarna og annar strákurinn þekkti hana eitthvað. Svo voru víst einhverjir frægir stand-up gaurar sem ég hef bara aldrei séð áður.
Jæja svo var kominn lúllutími. Við vorum samferða strákunum upp í lyftunni. Sögðum bara bless og löbbuðum út. Eru það nú dónar. Við gleymdum að þakka fyrir drykkina og alles.
"OOps we did it again!" Þetta minnir mig óendanlega mikið á "Benidorm - Sverrir" og
"Portugal - Sander" Það voru líka svona svipuð atvik:) Svo er ég alltaf að kvarta yfir því hvað strákar eru tillitslausir og dónalegir!
Við Halla fórum bara glaðar uppá herbergi og fórum að PAKKA. Halla sofnaði um leið og hún settist á rúmið. Mér tókst NÆSTUM því að pakka í tilraun #5. Ákvað að fara bara "vel klædd" í flugvélina:)
Halla var steinsofandi meðan ég pakkaði mínu drasli. Svo vaknaði hún þegar klukkan var að ganga 5, skellti sínu í töskuna og var tilbúin á no-time! Allt dótið hennar HVARF í töskuna.
Eftir þetta púl fórum við uppí rúm sáttar, átum sælgæti og góndum á Jude Law bjarga heiminum.
Á mánudeginum vöknuðum við, tjekkuðum okkur út og ferðinni var heitið í........... jebb...TARGET!! Enn eina ferina:)
Ég keypti tvo boli handa ömmu minni gömlu og hellings af extra tyggjói:)
Við tókum fly bus uppá flugvöll. Í honum voru tvær vinkonur og belive it ot not... önnur þeirra var heimskari en við Halla til samans! Þær voru á þessari ráðstefnu sem strákarnir voru á. Byrjuðu að spjalla við okkur og spurðu okkur hvaðan við værum. Ég segi Íslandi og spyr þær hvort þær hafi komið til Evrópu. Önnur er fljót að svara: "Nei, en þið" ??? Say no more....
Í bílnum TEIPAÐI Halla krabbana inní skelina sína.
Við inntékk opnaði ungur starfsmaður töskuna mína og fékk það skemmtilega verkefni að skanna HVERN EINASTA HLUT!! Ég sem hafði eytt klukkustundum saman í að troða öllu ofaní! Hann stóð þarna eins og asni og brosti kjánalega til okkar. Skammaðist sín greinilega. Ég sá hann tína upp g-strengi og brjóstarhaldara, hvern af fætur öðrum og skanna. Ok svoldið skömmustulegt fyrir mig líka :S
Ég spurði hvort allt yrði í k-inu. Hann bara "dont worry, I use to be in the army;) Ok pjúff, þá leið mér sko betur......!!! N-O-T!
En ég treysti kauða, sem ég hefði betur átt að sleppa því hann hefur greinilega tekið af mér sígarettukarton og frikking TANNBURSTANN minn!! Whats up with that??
Því miður voru engir sætir flugþjónar á leiðinni til baka. En við höfðun félagskap af súperman og batman... u know... the krab's :)
Ferðin endaði æðislega... ég var stoppuð í tollinum fyrir að SMYGLA áfengi og sælgæti til landsins!! ARG!! :@
Borgaði nettar 15 þúsund fyrir takk!
En við erum komnar lifandi frá þessu öllu saman og ég geri ekki annað á kvöldin en að máta mismunandi dress og sjá hvernig allt passar nú saman:)
Mamma er að fara í sömu ferð í haust og ákvað að hækka peningarupphæðina sem hún tekur með sér þrefalt, þegar hún sá hvað ég gat keypt mikið:) Svo kom hún með uppástungu að hún færi með okkur systurnar og Guðrún með sínar gellur allar saman einhverntíman!! JIBBÍ
Á þriðjudeginum fór ég í bíó með Heiðu Kareni. Við sáum geggjaða mynd í Smárabíói sem ég man ekki hvað heitir:p
Á miðvikudeginum var svona smá reunion hjá gamla Smárabíó-genginu. Við hittumst á Friday's og þar var margt gamalt og gott rifjað upp. Planið er að halda partý næst og ég held að Heiða hafi boðist til að vera gestgjafinn að þessu sinni:)
Á fimmtudeginum fór ég með Rakel Örnu uppá Stöð 2 og beið meðan stúlkan farðaði fréttafólk. Þar byrjaði ég að að drekka martini.
Viktor vinur Rakelar kom og keyrði okkur svo í bæinn:)
Þar fór ég á bjórkvöld hjá gamla skólanum mínum, FG. Þar var rosalega fyndið að vera að djamma með krökkum á aldri við litlu systkini mín! But who cares:) Ég skemmti mér konunglega á dansgólfinu. Ég hitti líka Heiðu, Valda, Þórhöllu, Þórunni, Bjarka Höllu's lillabro, Odd og fleiri vini bróðir míns..... ok kannski ég mæti ekki á næsta bara svona til að halda virðingunni... hehe:)
Ég var að vinna um helgina, fös, lau og sun... komin í tveggja daga frí núna.. JIBBÍ:) Þannig að ef einhverjir eru að fara að gera eitthvað skemmtilegt á næstunni þá er skylda að hringja í mig!! (",)
En þangað til næst....


posted @ 2/18/2005 01:00:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu