myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

janúar 23, 2005



Núna er sunnudagsmorgunn og ég hef unnið í samtals 25 tíma síðan á föstudaginn! Ekkert smá dúleg sko. Halla mín öfundar mig svolítið þar sem hún þarf að hanga heima..... Ok who am I kidding here. Hún fær að sofa út, eins og reyndar flestar mínar vinkonur núna. Ég þarf endilega að vera að vinna öfuga helgi við þær allar! Það er sérstaklega sárt þar sem sumar af þeim eru mínir one and only djammfélagar. Helga er reyndar núna á einhverju partý flipp ástandi þessar vikurnar. Skiptir engu hvort það er föstudagur eða mánudagur.

Ég mætti eldhress í vinnuna í morgun stundvíslega kl.8 eftir tæplega 3 tíma svefn. Mæli ekki með því samt.
Í gær átti Geiri afmæli og og var okkur Kristínu, Helgu og Heiðu leyft að koma í pulsupartýið(bara strákar sko! hehe). Þar sem mín átti að mæta í vinnu í morgun þá ákvað ég að vera driver í þetta skiptið.
Við lögðum af stað heiman frá Kristínu. Settum Sálina í CD playerinn og sungum hástöfum. Kannski einum OF hástöfum (æ þið vitið sjálfar hverjar :p )
Þar sá ég í fyrsta skiptið 6 massatröll fara saman inná klósett. Hmmm I wonder what they were doing there??
Svo var skundað í bæinn eftir að fólk var búið að hella ofan í sig.
Fyrst fórum við á Vegamót. Næst á Sólon. Svo á Nelly's. Þar voru strákarnir búnir að koma sér í einhverja vitleysu. Búið var að taka þá afsíðis því ónefndur aðili ætlaði sér að hjóla í einn dyravörðinn. Sagan segir víst að dyravörðurinn ÞORÐI ekki í hann.... hahaha er það nú dyravörður!
Þaðan fórum við á Gaukinn. Stelpur frítt inn. Loksins borgar það sig að vera með brjóst. Nei segi svona.....
Ég verð að viðurkenna að þetta er í fyrsta skiptið sem ég accually hafði gaman inn á þeim stað.
Það var eitthvað band að spila. Þeir tóku "Wisky in the jar", sem er náttúrulega bara snilld. Einnig Pixies, U2 og fleiri snillinga. Á leiðinni kynntumst við Svíum. Engum venjulegum samt. Þetta voru mjög kurteisir og almennilegir ungir menn sem komu með 200.000 kr til að EYÐA! Þeir komu með okkur á Gaukinn. Buðu auðvitað gellunum uppá drykki. Ég fékk VATN!!! Hann hefði alveg getað splæst í kók eða eitthvað annað óáfengt! hahaha
Fljótlega fórum við Kristín og Heiða að rölta upp laugarveginn. Æltuðum að hitta heittelskaða hennar Heiðu sem var á Vegamótum. Hún var svo stressuð greyið skinnið. Við mætum þeim á leiðinni. Guðjón og tvíburinn hans, ásamt vinum þeirra. Þeir sáu okkur ekki, en ég var fljót að garga á eftir þeim og láta sem það hefði verið Heiða. Þegar þeir komu var Heiða fljót að kveikja á sjarmanum og heillaði strákinn uppúr skónnum. Hún vildi ekki fara með þeim, en fékk koss á kinn í kveðjugjöf.
Þegar við byrjuðum að rölta af stað, ákváðum við að elta þá. Ferðinni var heitið á Sólon. Þar var Óli litli frændi að vinna og var ekkert að fara að hleypa yndislegu frænku sinni inn. Það hófst samt að lokum. Við tókum samt sem áður aðeins einn hring þar inni og vorum fljótar út aftur þar sem þar voru engin merki um neinn Guðjón. Þá förum við og ætluðum að láta Heiðu pissa á Ara. Á leiðinni er stokkið á Mögguna og hún hrist af ákafa. Þar var Ómar (Nylon myndbands beibíið og vinur Stebba) mættur að þykjast vera lögga. Spurði mann spjörunum út. Ég mátti fara eftir að hafa gefið honum tvo heila kossa á kinn. Á Ara var svo troðið að við nenntum ekki að bíða í klósettröðinni og löbbuðum til baka. Tókum við stóran sveig til að komast framhjá plat-löggunni.
Þá var rölt upp að litla græna bílnum mínum og keyrt heim. Heiða fattaði svo að hún væri enn í spreng, og ég stoppaði útí móa.... uuu þið vitið rest:)

Næstu helgi er Kristín að spá í að halda partý og Rut ætlar einnig að koma úr dvala og sletta ærlega úr klaufunum. Jibbí:)

Bless bless





posted @ 1/23/2005 10:00:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu