janúar 16, 2005
"Pókerkvöld" okkar stelpnana var í raun PÓKERKVÖLD! Ég hélt að þetta væri bara nafn, svona i staðinn fyrir að segja "saumaklúbbur" eða eitthvað svoleiðis. Ég mætti til Önnu Helgu um átta leytið. Kom mér þægilega fyrir í sófanum, fékk mér snakk og kók og byrjaði að spjalla.
Nokkrum mínútum síðar draga Hulda og Arndís upp pókerpeninga. Þar næst kemur Kristín eða Arndís (held ég alveg örugglega) með leiðbeiningar HVERNIG á að spila.
Við stilltum okkur við borðstofuborðið og byrjuðum. Ég kann bara eitt spil og það er ólsen ólsen, þannig að ég hefði verið fljótari að læra þýsku heldur en póker.
Ég tók eitt æfingarspil samt sem áður og rokkaði! ......... rigghttt nei ok það trúir því hvort eð er enginn.... en ég allavegana reyndi. Mér var reyndar búið að svima og var flökurt áður en ég kom til önnu þannig að ég nota það sem afsökun. Ég verð betri næst sko!
Á laugardeginum fór ég uppí vinnu til Höllu og við fengum okkur Subway eins og í gamla daga:) Hún þorir sko ekki með mér aftur á Nings þar sem ég bið bara um sýnishorn! Skil það nú ekki alveg... but anyways (",)
Uppúr sjö fórum við Kristín, Anna Helga og Halla á Café Aroma. Hvað er betra en að sitja í góðra vina hópi á kaffihúsi og sötra Swiss mocca?:) (Þið þurfið ekki að svara sko.... huhummm).
Um kvöldið komu Heiða og Helga heim til ofur Möggu, sem hafði lagt sig alla í að vera TILBÚIN þegar þær koma svo við gætum byrjað að sötra sem fyrst þar sem þær voru að vinna seint. En nei, ég klikka ekki frekar en fyrri daginn og var rétt að koma úr sturtu þegar gella númer eitt mætir á svæðið! Þetta gekk frekar smooth alveg þangað til Einar nennti ekki að bíða lengur eftir dömunum og ætlaði að skutla okkur í bæinn. Ungfrú "skynsöm" gleymdi SKÓM!! (Helga ofcourse) Ég rétt náði að róa hana því ég á tvö svört stígvel og gat lánað henni eitt par. Þetta kallast að sleppa fyrir horn:P (Helga þú veist samt að ég elska þig af öllu hjarta).
Okkur leið eins og þrem litlum öskubuskum. Okkur var keyrt í bæinn á gömlum Cadillac (ekki þekkt fyrir að vera mikil bílamanneskja, hef ekki glóru hvernig það er skrifað!) með Línu langsokk og Emil lögin í frekar rokkaðri útgáfu ....í botni. Svaka stuð þar.
Í bænum hittum við ágætis fólk. Á Sólon voru vinir Stebba, Geiri elskan (eins og í laginu þið vitið.... hehe) sem er verðandi Danmerkurfari ásamt okkur skvísunum og Stebba. Einnig Ófeig, ég komst að því að strákurinn er bara ýkt fínn nágungi. (Ég hafði bara hitt hann þegar hann er gjörsamlega á eyrunum þannig að það var ekki að marka). Einnig hittum við hluta af gamla Smárabíó-liðinu, minnir að það hafi verið Viktoría og einhverjir fleiri. Einnig hitti ég nokkra kokka af Grand-hótel..... þar komst ég að því að ég á ennþá nokkur ólærð nöfn :p
Stebbi hringir svo í Ómar og segjir honum að hann hafi hözzl handa honum.... MIG!
Við hoppum þá yfir á Ara. Þar var troðið, en þarna voru fleyri vinir hans. Reyndar FULLT. Ef hægt væri að selja vini sína þá væri Stebbi milli....
Svo var ferðinni heitið á Glaumbar. Þar var barasta hundleiðinlegt sko. Meðalaldurinn var ekki hærri en 18 ára. Þar hlustaði ég á einhvern strák tala um að ég líti alltaf undan þegar strákar væri að reyna að ná sambandi við mig. Ég er að tala um að hann lét dæluna ganga þar til að mér tókst að sofa með opin augun. Heiða yndi tók svo við og fór að spjalla við kauða. Hinumegin sátu Helga, Stebbi og getiði hverjir?? Nú enn fleiri vinir hans Stebba! (sko ekki sömu samt). Ég hitti líka Evu sem kynnti mig fyrir nýja gæjanum sínum.
Hún Hafdís beibí sem ætlaði að hitta okkur (þetta átti að vera okkar langþráða djamm saman) var föst rétt fyrir utan Hafnarfjörð í afmæli og fékk ekki bíl í bæinn:(
Tjah, þetta var ágætis djamm sosum, en ekki næstum eins gaman og það ÁTTI að vera:p
Ég var ekki lengi að hringja í Óla frænda og sníkja far heim.
Hössler kvöldsins var Heiða... AGAIN! Man ég þarf að fara að passa Heiðu litlu fyrir öllum þessum hönkum! Hún er reyndar ekkert skárri sjálf. Eitt skiptið greip ég hana glóðvolga við að þukla á vöðvunum á einhverjum risa svertingja töffara. Hún var eins og barn í sælgjætisverslun!
Ég er að fara að sofa núna, vinna á morgun. Ætla rétt að vona að ég hafi orku í það. Ég er búin að vera "að verða veik" í langann tíma...... Alltaf slöpp og flökurt. Ekki bætir úr skák að ég er víst með mígreni og hausinn á mér er bókstaflega að springa núna.... En þar sem það er ekkert voðalega merkilegt, ætla ég að stoppa núna.... bæjó...
posted @ 1/16/2005 10:31:00 e.h.