myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

janúar 27, 2005



Það er ekkert smá sem tíminn er fljótur að líða. Fyrir smá stund var ég að bíða eftir jólunum. Núna er næstum kominn febrúar!
Það er eins gott að þetta ár verði eins gott og það síðasta. Þá er ég aðalega að tala um Portúgal ferðina okkar góðu.
Þann 21.júlí lá leið okkar Heiðu, Helgu og Rutar til Portúgals. Það var eitthvað sem gleymist seint. Rut var sú eina sem var á föstu, Helga loksins orðin laus og liðug eftir 4 ára samband!
Við kynntumst fljótt Kanadamönnum. Þeir buðu okkur svo í partý í villunni þeirra. Sem var by the way GEGGJUÐ. Allavegana miðað við flest húsin þarna. Þar var sundlaug í garðinum og flest það sem fylgir svona flottum húsum. Við Rut og Helga sváfum í risa rúmi sem var á hæðinni fyrir ofan. En gólfið náði aðeins yfir helming af hæðinni og gat maður séð yfir alla íbúðina. Heiða svaf í öðru herbergi. SVAF bara! hehe bara koma því á hreint.
Næsta morgun er okkur skutlað eins og prinsessum til baka. Eitt skiptið erum við að rölta í nýja bænum og þá kemur strákur að okkur og selur okkur miða á svona "pöbbarölt" sem átti að vera síðar. Seinna um kvöldið förum við á Kadoc sem er risa froðudiskó. Strákurinn sem seldi okkur miðana ætlaði að koma og hitta okkur þar, hann Sean. Við komum okkur fyrir í röðinni með miða sem við höfðum fengið gefins. Svaka skutlur sko. Létum taka myndir af okkur fyrir utan og spjölluðum við fólkið sem var á leiðinni inn. Montuðum okkur á því að vera með miða. Við hefðum betur átt að sleppa því. Þegar við komum loksins að hurðinni þá sagði strákurinn að þessir miðar gilda alla daga NEMA sunnudaga. Við áttum að borga 20 evrur minnir mig, sem er alveg hellings peningur þarna úti fyrir skitinn miða.
Hahaha við héldum sko ekki! Stóðum þarna og notuðum sjarmann, en dyravörðurinn var ekkert að hleypa okkur inn. Það var ekki fyrr en tveir herramenn sáu okkur standa þarna eins og hálfvitar. Þeir komu og borguðu inn fyrir okkur allar:)
Sögðu svo bara "góða skemmtun" og that's it! Ekkert að biðja um dans eða neitt í staðinn.
Við alveg himinlifandi yfir þessu. Þegar við fengum miðana þá fylgdi með blað sem þýddi að við gátum fengið fría drykki líka á barnum! Kvöldinu bjargað.
Við sáum Sean og Andy fljótlega. Þá sem sjá um pöbbarölt-dæmið. Hann Sean var mjög sætur og flottur ÁÐUR en við sáum hann dansa. Ég er að tala um að drengurinn dansaði eins og Usher.
Hann var líka út um allt gólf, uppum alla veggi ALLSTAÐAR tókst honum að koma sér á stað þar sem hann myndi örugglega fá athygli.
Ég sá líka sundlaugavörðinn sem ég hafði kynnst í seinustu Portúgalferð. Hann Claudio Augustos or somthing. Hann þekkti mig strax og sagði mér að koma í heimsókn á hótelið sem hann vinnur á. Seinna um kvöldið er hann að fara og kemur með símanúmerið sitt á sérvíettu og gefur mér.
Hélt gaurinn í alvöru að ég myndi acually hringja!?!
En nóg um það... Svo var loksins komið að þessu langþráða pöbbarölti. Það átti að vera þannig að um 200 manns átti að rölta milli staða saman og fara í drykkjuleiki og hafa gaman. Á fyrsta staðnum þá var okkur skipt í nokkrar raðir og áttum við að þamba freyðivín. Sú röð sem klárar fyrst nokkrar flöskur, vann. Úti á svölunum sá ég fallegasta strák sem ég hef nokkurtíman séð. Hávaxinn dökkhærður með græn augu. Gaf honum auga ;). Heiða tók svo þátt í leik þar sem parað voru strák og stelpu og áttu þau að leika eins margar stellingar og þau gátu. Sá sem Heiða lenti með var greinilega ekki með mikla reynslu... hahaha
En þegar við áttum að fara að færa okkur á næsta bar komumst við að því að Sean hafði verið að bulla. Hann sagði að það myndu vera vatnsbyssur á lofti til að sprauta uppí mann áfengi. Við ákváðum að fara í búðina á móti og kaupa bjór. Stykkið kostaði hvorki meira né minna en 0.04 evrur! Sem er rétt um 3 KRÓNUR!! Ekki einusinni 30 heldur 3!! Kippan á heilar 18 krónur:)
Við vorum ekki lengi að hamstra og komum okkur fyrir utan staðinn til að þamba. Þá labbar Sean framhjá okkur með stelpu og segist ekki komast sjálfur á djammið. Við hundfúlar yfir því að það séu ekki vatnsbyssur, þannig að hann segist þekkja alla þarna og ætlaði að bjóða okkur í vatnsskemmtigarð og ætlaði að endurgreiða okkur hluta:) (Hann skuldar okkur ennþá).
Svo koma frakkar og spjalla líka við okkur. Þeir tala ekki bofs í ensku og voru alltaf að tala um "dancebox".... það átti sko að vera skemmtistaður á ensku.... við hlóugm okkur máttlausar.
Þegar við höfðum stútað bjórunum fórum við að hitta krakkana sem voru komin á annan stað.
Þar sjáum við aftur þennan flotta hávaxna gæja sem ég hafði gefið auga og það fyrsta sem við gerum er að pikka í hann og biðja um mynd af okkur með honum. Svo hrindir Helga mér á hann og segir "þetta er Magga" og labbar í burtu. Hann bauð mér "sex on the beach" DRYKK SKO... hehe og við förum að spjalla. Þetta er hinn margumtalaði Sander. Rut langaði allt í einu í ís og við förum í ísbúðina sem er opin alla nóttina, weird. Þar kaupir vinur hans, Simon ís handa Ruttu sinni. Sander biður mig að rölta aðeins og við komum leiðandi hvort annað til baka:) aawww en sætt:)
Við nenntum ekki að hangsa lengur með hinu liðinu, og ákváðum að fara strax á Kiss, sem er risa skemmtistaður. Þar var manni boðið aftur uppá drykk. Enda miklir herramenn þarna á ferð með okkur. Fljótlega kemur Toxic á fóninn. Við Rut brugðumst flótt við, enda vitum báðar hvað það þýðir. Hoppuðum uppá hátalarann og dönsuðum ákaft;)
Heiða hafði fengið leyfi til að vera "ein" í smá tíma til að geta hösslað strákinn sem hún var með í leiknum fyrrnefnda. Ætlaði að sýna honum move-in... nei segi svona....
En við allavegana föttum að hún er týnd. Förum að leita en svo segir Sander, sem hafði mestar áhyggjur, að hún sé örugglega komin á hótelið.
Mikið rétt. Hún hafði verið að bíða þarna eftir okkur.
Við fórum inn og Sander greyið fékk að sofa á gólfinu. Gat ekki sofið vegna þungs lofts og bað kurteisislega um að fá að opna svalahurðina aðeins. Ég bara NEI! "ég er hrædd við eðlurnar".
Svo um morguninn var hann þyrstur og spurði hvort við hefðum vatn eða eitthvað. Ég bendi honum hálf sofandi á djús sem hafði staðir á borðinu yfir nóttina og guð má vita hvað gamall. Hann drakk það þegjandi og hljóðalaust. Hann spurði mig hvort ég væri með eitthvað símanúmer, en ég sagði nei. Hafði náttúrulega bara síma heima. svo spurði hann mig hvort við myndum hittast aftur, og ég hafði auðvitað ekki hugmynd! How am I supposed to know?
Ég benti honum svo bara á leigubílastöðina og hann fór.
Tveim dögum seinna sjáum við þá strákana, hóp af 2. metra háum gaurum!
Heiða og Rutta skottast á eftir þeim og bendir þeim að koma til okkar.
Við förum á barinn þar sem ég sá þá fyrst. Þar skiptumst við á að láta þá tala íslensku og okkur hollensku. Ég var í hvítri skyrtu með hneppt aðeins frá.... og Sander líka! How gay can he be!
Okkur var boðið uppá bjór. Spjallað aðeins meira um ekki neitt. Rut greyinu leiddist, skiljanlega, þannig að hún rölti uppá hótel. Við förum með strákunum á þeirra hótel. Það var 4* hótel, þvílíkt lúxushótel! Þar sátum við og hlustuðum á Metallica og fífluðumst. Tomas var að monta sig yfir hvað hann ætti flottar skyrtur. Helga fór með honum til að sjá, en þá fór hann að klæða sig úr!! Mín ekki sátt og gargaði að gaurinn væri að afklæðast! Sander fattaði hvað var þetta var ósmekklegt af honum og skammaði hann á hollensku. Þegar þeir tala saman, þá er eins og þeir séu að hrækja á hvorn annan.
Næsta dag kvaddi ég stráksa. Hann fór eitthvað að vera væminn og ég sagði strax bara að stelpurnar væru að halda lyftunni fyrir mig. Ekkert smá mikil tík. Ég kvaddi og labbaði í burtu. Hann stóð eftir með stóru grænu hvolpa augun sín:( Poor thing.......
Seinasta kvöldið okkar var ansi skondið. Við höfðum farið á bananabát, og gaurarnir sem sáu um það voru svo flottir að þegar lítill ljótur krullhærður kall kemur og ætlar að bjóða mér ut að borða, segi ég við hann að ég vilji heldur hitta hann í bænum, en BARA ef hann tekur strákana sætu með! Lúmsk ha? hehe
Við ætluðum ekkert að djamma. Vorum niðrí bænum og ég var búin að fara í nammibúð og kaupa fullan poka af sælgæti. Svo förum við inná barinn þar sem ég átti að hitta kallinn. Hann segir að hinir kæmu seinna. Við vorum fljótar út. Förum og fylgjum Heiðu til að hitta Pálma, íslending sem hún kynntist. Svo förum við aftur á barinn og ekkert bólaði á flottu gæjunum. Þessi krullhærði stóð þarna, hafði beðið eftir okkur allan tíman og sagði að hinir hefðu komið og farið. Já einmitt! Ég sat uppi með kallinn. Hann var blanda af hobbita og kallinum í Animal! hahaha... Stelpurnar hitti Sænsku hommana sem við höfðum hitt áður. Það var þannig að einhverjum dögum áður hafði annar kom til mín og farið að tala við mig. Helga kom þá brjáluð, tróð sér á milli og gargaði "she's taken" !! Þá sögðust þeir vera hommar.
Núna voru þeir að leiðrétta það. Sögðust hafa verið að fíflast og voru bræður. Sá sem að talaði við mig, gerið það til að hözzla Helgu en ekki mig. Þau stóðu og voru öll að tala saman, meðan ég var föst að tala við Krulla. Hann þóttist vita svo margt um Ísland. Td að það væri -50 og bjart í 6 mánuðu og svo myrkur í 6 mánuði. Ég spyr bara, í hvaða skóla gekk maðurinn í??
Bráðum sá annar "homminn" að ég væri að DEYJA úr leiðindum. Þá fór hann að klípa í rassinn á stráknum sem stóð fyrir aftan krulla, sem hélt svo auðvitað að væri krulli að klípa og var ekki sáttur! Svo kom sænski homminn að krulla og fór að reyna við hann!! Hahaha það var BARA fyndið. Hann dansaði fyrir framan hann og snerti hann á frekar hommalegan máta. Við stelpurnar bókstaflega dóum úr hlátri! :)

Það tókst, krulli var ekki lengi að láta sig hverfa. Þá sáum við þennan rosalega myndarlega barþjón. Sænski homminn ætlaði að láta mig hözzla hann. Fór til hans og kom með drykk frá honum handa minni. Því þeir hommabræðurnir voru að hözzla stelpurnar, Rut og Helgu og nenntu greinilega ekki að ég yrði ein með þeim... iss er það nú framkoma... hehe
Svo sagði hann barþjóninum að hann ætti að hitta mig á Kiss barnum. Hann fékk að ráða hvort hann ætlaði að hitta mig á Kiss, eða homman eftir vinnu:) hehehe ... Hann valdi mig:)
Þar sem ég var í svötru pilsi, stígvélum og AFASKYRTU þá ætluðu hommarnir að koma með okkur heim á hótel og velja eitthvað á mig. Annar sagði að ég ætti að vera í öllu svörtu til að ég myndi ráða ferðinni......... jahá, og þeir sögðust EKKI vera hommar;)
En þegar á hótelið var komið, þá héngum við þar bara..... klukkan orðin um 3 leytið og rútan kæmi 8 að ná í okkur. Við hentum homma greyjunum út og fórum að pakka.
Náðum ca 2-3 tíma svefni og þá var lagt af stað heim...

Stelpur... það VERÐUR farið aftur í svona ferð!!! Eru þið ekki sammála???

Þegar ég kom heim, sá ég smá eftir Sander... þetta er sko gallalaus strákur (almost).
Ég sendi hótelinu mail, og vitið menn... ég fæ mail frá honum nokkrum dögum síðar... :)
Sko ef ég er ekki rómantísk stelpur þá veit ég ekki hvað!!:) hahaha
Nei ok, to much info here....

Hún Heiða hélt einnig sambandi við Pálma beibí sem hún kynntist, þótt að strákurinn býr á Selfossi.

Já ég vildi bara aðeins rifja upp ferðina sem við söknum allar alveg heilmikið, it was the best:) ps. ég ákvað að sleppa öllu details, þið vitið það bara sjálfar (",)

Ble


posted @ 1/27/2005 01:21:00 e.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu