janúar 13, 2005
Á þriðjudagskvöldið ákváðum við systurnar að hafa kósý og horfa á friends og nýjust O.C seríuna sem er ekki byrjað að sýna á íslandi. Við komum okkur vel fyrir í risarúminu hennar Rakelar, í náttfötunum og með narterí. Ekki leið á löngu þar til Rakel sofnar, en mín heldur áfram að góna þar til klukkan 5 um morgun. Svo reyni ég að sofna. Þegar klukkan var orðin 7 og mér hafði ekki tekist að sofa í einusinni 5 MÍNÚTUR þá kveiki ég bara aftur á O.C og held áfram þar sem frá var horfið. (Kannski er ástæðan sú að ég svaf í 13 tíma nóttina áður, lalalala). En ég skelli mér samt eldhress í ræktina um 11 leytið. Kl. 14 næ ég í Halldóru, litlu systur númer tvö í skólann og við förum uppí vinnu að athuga hvort ég fæ ekki alveg örugglega frí ef ég færi til USA. Jú jú það ætti ekki að vera mikið mál! JIBBÍ:) Svo skottumst við á laugarveginn og skoðum í búðir.
Ég sofnaði uppí sófa klukkan 5 seinnipartinn í gær eftir að hafa vakað alla nóttina. Það úrskýrir hversvegna ég er vakandi núna! Vaknaði klukkan 8:30 og fór að taka úr uppþvottavélinni og ryksugaði!! Ekkert smá dugleg! Þetta hefur ALDREI skeð áður! :)
Ég er að spá í að skella mér í ræktina núna áður en ég þarf að ná í Halldóru. Maður er pössunarpía í fríunum sínum.
Í kvöld ætlum við skvísurnar að hittast. Bara kaffihús eða eitthvað. Helga er samt búin að vera slöpp, but there is no turning back baby:) Kannski maður kíkji á Sólon, eitthvað að gerast þar vonandi þar sem það er nú einusinni fimmtudagur. Svo er það HELGIN!! Það var búið að lofa mér djammi, en við sjáum nú til hvernig það fer:) Kannski maður elti Kristínu á "Klúbbinn"... hehe .... Kristín you know what I mean! ;)
Svo sá sem fréttir af sveitaballi láta Möggu vita!!! Ég missti af seinasta og á skilið að komast á eitt slíkt sem fyrst;)
En þangað til næst...
posted @ 1/13/2005 09:55:00 f.h.