myspace layouts, myspace codes, glitter graphics

janúar 10, 2005



Já nú fer þessari næturvaktar-törn senn að ljúka og ég er ekki frá því að mín er farin að geyspa.
Nú blasir bara við VIKUFRÍ! jibbí..... hver dagur er sko planaður (tja svona næstum því).
Það sem er helst á dagskrá er að heimsækja Heiðuna mína uppí Versló núna þegar ég er búin. (ég ætla ekki að sofa neflilega svo ég nái að snúa sólarhringnum við) Við ætlum kannski að kíkja í kringluna eða eitthvað. Já eða bara rifja upp hvernig það var að vera í frammhaldskóla, hver veit. Svo var ég að spá í að fara á Laugarveginn og í Smáralind.... ok semsagt bara VERSLA! Svo get ég ekki beðið eftir leðurjakkanum mínum sem ég á pantaðann. Hann kemur í febrúar!
Við Kristín verðum svo að fara og leita af vinnu í Portúgal. Planið er að vinna þar í ca mánuð en kristín kannski lengur. Það verður GEGGJAÐ!! (ef allt gengur upp). Einnig þurfum við Danmerkurfararnir að finna freeking íbúð. Ég hef eytt mörgum næturvöktum í að leita af pleisi til að búa í. Ég, Helga, Stebbi, Geiri og Halla erum öll að spá í þetta. Verðum örugglega að splitta í tvær íbúðir. Smá svona Friends fílingur í þessu:) Þá er bara að finna sér kaffihús til að leggja undir sig. Gunther persónan má samt vera aðeins flottari. Wow ég er komin yfir "eðlilegt geðástand" línuna.

Stelpurnar voru líka að plata mig í að lita hárið á þeim, Helga vill verða ljóshærðari og Kristín dökkhærðri. Ég er ekki frá því að ég skelli einum dökkum lit í sjálfa mig, komin með pínu leið á ljósku-dæminu. "Blonds have more fun" ....... bara bull er ég farin að halda!

Hún Tútta mín (a.k.a Rut Gunnarsdóttir) er búin að vera veik í ég veit ekki hvað langann tíma. Sakna pínu djammana okkar stallna. Hún er með einhverskonar strepptakrokka-bla bla bla og líka einhverja aðra veiki og virðist bara ekkert vera að ná sér veslings stúlkan.
Þess má til gamans geta að hún var að skoða Victoria's secret síðuna og mátti panta sér eitthvað. En nei nei.... hún FANN ekkert sem henni LANGAÐI Í!! Ok í fyrsta lagi, ef maður MÁ kaupa sér eitthvað frá Victoria secret þá GERIR MAÐUR ÞAÐ. Og í örðu lagi þá er ALLTAF eitthvað sem manni langar í!! Ég var sármóðguð. Virkilega fyrir vonbrigðum með frænku mína. En hún er samt veik greyjið, það gæti hafa haft áhrif.

Andri beibí kærasti Rakelar systur fór í gær heim til Danmerkur. Stúlkan er í nettu sjokki, gæti verið að ég þurfi að knúsa hana all verulega til að minnka þessi fráhvarfseinkenni. Já eða bara boðið henni með að versla:) Það læknar allt!

Later........



posted @ 1/10/2005 06:52:00 f.h.


♥~*Þú ert gestur núner*~♥
amazingcounters.com
Disney Movie

♥~*Ég*~♥

Margrét heiti ég og er fædd 2.apríl 1983. Stúdent frá FG. Ég bý í Tallahassee Flórida ásamt kærastanum mínum og stunda hér nám í innanhússarkítekt:)

♥~*Gestabókin*~♥



Kvitta hér takk!

♥~*Myndir*~♥

Skoða myndir!

♥~*Hafðu samband*~♥



Mailið mitt

♥~*Vinir og vandamenn*~♥



Rut
Adda
Halla
Valdi
Hulda
Hafdís
Stebbi
Kristín
Helga O
Harpa A
Dívurnar
Rakel Arna
Anna Helga
Heiða Karen
Fannar minn
Rakel sys og co
Þórhalla og beibur
Förðunarsíða Höllu
Magga Grand-pæja
Anton litli hennar Míu