janúar 09, 2005
Já núna er Maggan að vinna eins og brjálæðingur. Ég er á næturvöktum þessa vikuna og svo vikufrí frá og með næsta mánudegi! Jibbí! :) Þegar ég segji vinna eins og brjálæðingur þá meina ég accually bara hanga í tölvunni, búa til blogg og skoða skóla úti í Danmörku. Er að vinna í 12 tíma þannig að ég hef plenty time til að eyða. Við vorum með bíórásina og stöð 2. Þá gat mín setið fyrir innan og glápt á imibann alla nóttina með ís og pizzu:) Já er það nú vinna! En þessar stöðvar eru horfnar út í buskann, eða bara ekki tengdar lengur I don't know... en ég hef allavegana E, sem er svona fræga fólkið í hnotskurn. Hver elskar ekki að horfa á slúðursögur um þessar elskur?
Ég var að tala við Stebbann minn... uuu nei það er víst Stebbinn hennar Helgu núna! (Helga jú ó mí nýja bitch!) Já og hann semsagt er að djamma með Helgu minni og Árna, Ófeigi og Geiri er driver. Hann sagðist ætla að koma hingað á hótelið og þau myndu drekka hér. Mín ekkert smá ánægð yfir því að fá gesti!! Tíminn líður og enginn kemur að heimsækja Mögguna :(
Ég hringi þá í Helgu og hún segir að hún vissi ekkert af þessu plani, að Stebbi bullaði bara allt of mikið! Iss eru það nú vinir! En mér til huggunnar þá sagði hún að þau myndu kannski kíkja:)
En wow þetta er nú merkileg saga..... hahaha...... þetta sýnir bara hvað ég er einmanna hérna.
Ég átti yndisleg jól og áramót. Takk fyrir mig þetta voru allt æðislegar gjafir!
Um áramótin fór ég á ball með Heiðu minni. Sálin var að spila og fá þeir eitt stórt klapp fyrir frammistöðuna:) Við hittum Helgu og Stebba ásamt helling af vinum hans... svo var Rakel Arna einnig þarna með kæró. Svaka stuð þar. Við Heiða mættum gallvaskar uppúr eittleytið. Plöntuðum okkur í VIP svæðið og svo var bara byrjað á því að skála freyðivíni.
Helga fær samt drykkjuverðlaunun að þessu sinni. Manneskjan varð HYBER. Hef aldrei séð annað eins sukk á þessari annars hógværu og siðprúðu manneskju.
En ég ætla að fara að fá mér heitt kakó.... Bless í bili....
posted @ 1/09/2005 01:58:00 f.h.